Ég er að hugsa um að fara gera svona lista af og til, lista af öllu og engu, bara svona til gamans. Fyrsti listinn er listi yfir hluti, mat og allt sem mig langar í akkúrat núna:
- Kóka kóla
- Faðmlag
- Lakkrís
- Ímyndunarafl
- Litla frænku (er að bíða eftir að systir mín eignist barnið sitt)
- Sól og hita
- Nýja fartölvu
- ....og síðast en ekki síst, mega súper gáfaðan heila!!!
Þetta var stuttur og fínn listi. Það er einn hlutur af listanum sem ég get hlaupið og fengið mér strax, já það er kóka kólað sem er yfirleitt til heima hjá mér, enda mjög svo mikill fíkill á þann unaðslega drykk. Ég gæti svosum farið og faðmað Simba, þá er ég búin að fá tvennt af þessum lista...hmmm......
Ætla að deila með ykkur mynd af honum í staðinn:
Sjáumst!
Simbi alltaf jafn flottur!
SvaraEyðahehe..eitt fyndið - ég las kókó mjólk efst - held að það sé útaf því að mig langar í kókó mjólk!
ótrúlegt hvað heilinn getur gert :)
kv. Anna Lilja
Hey sniðugt.. svona listi.. :D Mér langar að litla frænks komi! :( Kv. Silja
SvaraEyða