Þetta verður slæmur listi. Ég er að vísu ekki í fúlu skapi í dag (sem er eiginlega bara ágætt) en ætla samt að gera fúlan lista:
- Ég er þreytt.
- Mér er kalt.
- Einbeiting mín er í lágmarki.
- Ég er með harðsperrur.
- Það er skítugt heima hjá mér og ég nenni ekki að þrífa.
- Það er rigning.
- Ég er að fara vinna á eftir...
- ...og ég er svöng.
En eins og seinast, þá er þetta flest allt sem ég get lagað að sjálfsdáðum. Til að mynda get ég lagt mig í smá stund, farið í peysu til að hlýja mér. Þrifið heima hjá mér og fengið mér að borða. Þetta með harðsperrurnar, vinnuna og rigninguna get ég lítið breytt...
Vona að dagurinn ykkar er jafn fúll og minn!
Sjáumst!
Það er rétt þetta stelpa, mánudagar sökka.
SvaraEyðaaha...frekar mikið...
SvaraEyða